Ađalvalmynd

Auglýsing

Kristó eđa Kreistó?

Könnun

Vćri beikon betra ef svín gćtu flogiđ?

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Ađrar Glćsisíđur

Gömul hrć á víđavangi!?Kristófer Ari

Núna þegar kuldabolinn slær okkur í smettið á hverjum morgni er ég farin að taka betur eftir allskonar lyktum miklu betur. Eins og í dag þá var gott veður en samt sem áður svolítið kalt loft svo alltaf þegar gamlar kerlingarhræður gengu framhjá mér varð eftir svona 5 mínutna lykt af ilmvatninu þeirra. Það er kannski eins gott að þær séu með svona mikið ilmvatn því það er staðreynd að ástæða fyrir því að gamalt fólk ,aðallega gamlar skruggur á dánarbeðinu, notar ilmvatn í óhóflegu magni. Það er svo við finnum ekki fýluna af þeim rotna. enda margt skemmtilegra í þessum heimi en að þefa af hálfrotnuðu hræi sem er í göngu.

Svo var mér að detta í hug að pára niður það sem ég hata mest við internetið. Og athugið að þessi listi er alls ekki tæmandi.

Jæja ég nenni ekki að eyða meiri tíma í að skrifa niður hluti sem ég hata. Ætla fara spila fifa, hata ekki fifa!

Buxur kölska?Kristófer Ari

úna vinn ég í skerjafirðinum, nánar tiltekið í skildingarnesi. Skildingarnes ber nú nafn með rentu enda aurapúkar, sem baða sig uppúr malti og appelsíni og skeina sig mánaðarlega með jafnmiklum peningum og ég þéna á mánuði. En það hefur nú ekki beinlínis vakið athygli mína, þó ég sé nú lítið með vökul augu mín á ríkum rassgötum. Það sem hefur vakið óhug minn og beinlínis hrellir mig í svefni eru buxurnar sem fólk lætur fífla sig í til að hjóla í. Níðþröngar buxur sem ekki engin ætti að klæða sig í nafni alls sem er réttláts í þessum heimi. Stundum vona ég að þeir hjóli fyrir bíl og deyji, og gamall hundur myndi míga framan í þá. Þá myndi réttlætið sigra.

Jæja vildi bara koma því á framfæri hversu ógeðslegt þetta er. Svipað ógeðslegt og nautheimskar ljósabekkja gálur. Stelpur sem líta út fyrir að vera brenndar kjetbollur í framan og með aflitað hár. Lame to the max

KrisliciousKristófer Ari

Reykjavíkur fætur, Reykjavíkur fætur og mamma þín grætur ... þetta er nú bara stuttur lagstúfur sem vel væri hægt að syngja ef sá gállinn væri á manni. En ég er ekki komin hingað til að syngja eins og flón sem er nýbúið að týna skóþvengnum sínum. Onei. Kannski seinna en allra síst núna. Afhverju? það veit að satt segja enginn nema fuglinn fljúgandi og einhvurjir prófesorar.

Það styttist í að hin ómargumrædda og rómaða hljómsveit Prostidudes gefi frá sér fyrsta "Singúllinn". Við erum nokkrir góðir menn sem höfum sameinað krafta okkar til að búa til frábæra tónlist. ég (Special-K) gunnar óli (G-milk) Eiki (AK) Sindri (Siddi BBQ) og svo er Teddi bróðir andlegur stuðningur (T-hug).

Nokkrar vangaveltur hafa verið um hvað fyrsti diskurinn á að heita og hef ég og Gunnar velt tveimur nöfnum helst fyrir okkur. Fyrri hugmyndin var On top of a Hole en seinna meir kom önnur hugmynd fram í dagsljósið. Það var Smurður Inúíti sem er þá skírskotun í gömlu TP and the fuckfaces rappsveitina sem tröllreið öllu skólakerfinu þegar við vorum í hva 8.bekk. TP lofaði að gefa næst út disk árið 2008 en við virðumst ekki eftir að eiga ná því.

Prostidudes er þannig afsprengi af þessari frábæru hljómsveit en meðlimir eins og Megnus már, Trygg daddy og Kári Guðmunds verða ekki partur af nýju sveitinni, allaveganna eins og útlitið er í dag. En þetta voru stór nöfn í rappbransanum þegar TP var og hét. TP var meðal annars kjörin Frumlegasta sveitin í rímnaflæði hér um árið.

TP and the fuckfaces RIP og megi Prostidudes lengi lifa! hippahúrra!

Hvađ skal gera ţegar kreppa bankar ađ dyrum?Kristófer Ari

Hef verið að skoða á netinu og finna ýmis kreppuráð sem er gott að hafa bakvið eyrað nú á þessum síðustu og verstu dögum. Ef þú myndir spyrja mig hvað besta kreppuráðið væri í alvörunni myndi ég sýna þér þetta vídjó

hér -> http://www.youtube.com/watch?v=6wS5xOZ7Rq8 ....Classic ráð til að sýna kreppunni hver er að kreppa hvern

Annars eru nokkrir hlutir sem mér dettur í hug. Heimtaðu við vinnuveitanda þinn að fá útborgað í nammi. Frystu alla reikningana þína. Það er auðvelt það er að segja ef þú átt frysti og færð seðlana senda heim.Éttu svo úr ruslinu á bakvið KFC. Þeir henda alltaf fullt af bitum í ruslið, og hvað með það þó það lendi í einhverjum viðbjóði, bara blæst lauflétt á það og allt er orðið gott.

Ég las hjá eeinhverjum dólgi að hann sagði að það væri góð hugmynd að prufukeyra bíla hjá bílasölum því það væri frítt. Ef sá gállinn er á manni á maður að sjálfsögðu að keyra heim til sín og sjúga bensínið upp úr bílnum, færa það yfir á sinn og skilja svo nóg eftir þannig maður nái aftur út á sölu.

Sjálfur finn ég ekki fyrir neinni kreppu. Meðan ég á nóg fyrir bót fyrir boruna á mér er ég ánægður. Afhverju segir fólk samt að maður eigi ekki fyrir bót fyrir boruna á sér? Ég veit nú að ég á alveg fyrir bót sem gæti hylmt yfir alla boruna mína en ég ætla mér samt ekkert að kaupa hana. Hefur einhver séð mann sem er svo fátækur að hann eyddi seinustu aurunum sínum í bót til að setja fyrir boruna? Það er þá sennilega til að halda matnum eins lengi inni í rassinum og hann mögulega getur.

Jæja kreppukveðja gerpin ykkar

KreppaKristófer Ari

Núna er komin bullandi kreppa á ísland en mér er svosum sama um hana. Í góðærinu voru allir að beygja, svo kom kreppan svo núna eru bara bjartir tímar framundan. Því eins og allir vita að á eftir beygja og kreppa kemur sundur og saman. Sem þýðir þá að strax eftir kreppuna kemur smá sundrung í þjóðina en svo koma allir saman aftur og lífið fellur aftur í ljúfa löð. 

Að lesa blöð í dag er líka einstaklega niðurdrepandi. Allir að væla yfir kreppunni eins og stungnir grísir, labbaði út áðan og sá þá Geir H. Haarde og Davíð oddson vera pissa yfir almúgan. Stóðu í körfu á kranabíl og léku sé að míga yfir lítilmagnann. En það þýðir ekkert að væla. En núna er heppni að eiga ekkert því þá tapar maður öngvu. Talandi um að tapa ekki þá hefur Liverpool ekki tapað leik í 12 leiki í röð. Það er indælt.

Núna situr sindri hliðiná mér og vælir eins og engin sé morgundagurinn. Hann er nýkomin með einkaþjálfara og hann reyndi svo mikið á sig að hann skeit smá á sig. Og segist vera komin með einhverja vöðvabólgu...en við höldum því nú reyndar bara fram að hann hafi bara slæmt keis af vælunni. Jafnvel afbrigði. Miðað við vælið í honum er eins og vælið hafi stökkbreyst og komi fram í einstakri leti og búkhljóðum.


 Svo ef ég er heppinn slepp ég við að fara til Stykkishólms að vinna þar til í Mars. Nenni varla að fara hanga á stykkishólmi þar sem ekkert er hægt að gera nema spila körfu. Reyndar er bærinn líklega blámannalaus núna þar sem Snæfell sagði þeim öllum upp. Ekki hægt að hafa rándýra blámenn í að spila körfu meðan sveitadurgarnir sitja á bekknum. Tími durganna er liðinn.

fyrir vestanKristófer Ari

Margt skrýtið gerðist fyrir vestan en það er nú bara eins og gengur og gerist þegar maður fer þangað. Skemmtileg tilviljun þegar ég fór að skoða eitt verk á barðaströndinni, sem ég vissi ekki af fyrr en 5 mínutum áður en við komum á staðinn, á sveitabæ sem heitir Hagi. Einhvað kannaðist ég við þetta og bjallaði stutt í móður mína og viti menn. Þarna var bara á ferðinni sveitabærinn sem Amma mín ólst uppá og hitti ég því uppeldisbróður ömmu hann Bjarna þar.

Svo var farið á patreksfjörð í bæinn blómstrandi. Held ég hafi séð innan við 20 manns báða 2 dagana sem ég varr þarna. Ekki beint hægt að segja að bærinn iði af lífi.

Næst lá leiðin frá Patreksfirði yfir á hólmavík, og fórum við að tína rekavið, drumba, spítur sem fljóta í sjónum og enda í fjörunni. Þar var mikill meistari að keyra vörubílinn sem hífði allt timbrið um borð. Eitt skiptið varð honum heldur brátt í brók en dó svo sannarlega ekki ráðalaus. Nei á vestfjörðum  og nágrenni hafa menn ráð undir hverju rifi. Hann dreif sig bara í bílinn, náði í skeinis rúllu og sagði við okkur með bros á vör " Ég er farin að drulla ". Eins og ekkert væri sjálfsagaðra. Jæja ég vissi nú alveg að menn þurfa skíta á misskemmtilegum stöðum og sýndi honum ekkert nema skilning. En það sem fylgdi á eftir fannst mér ekki jafn auðskilið.

Ég næ í lítinn trébút og ætla henda honum sjálfur uppá bílinn. Það var orðið fullt á minni hlið svo ég labba hinu megin við bílinn til að kasta því uppá þar. En viti menn hvað sé ég? Þar er bílstjórinn upp við kletta svona um það bil 40 metra frá okkur,standandi, horfandi niður á við og heldur í hnén á sér og lætur bara vaða í guðs græna nátturuna. Gat hann ekki að minnsta kosti farið bakvið klettinn? hugsaði ég en fátt var um  svör. Ég býst við að þegar mönnum  er mál fyrir vestan þá er mönnum mál!

Annars var þessi ferð eins og vanalega. Fullt af heimsóknum  þar sem  ég sat við kaffiborðið, sötraði kaffi og var í vandræðalegri þögn hliðiná Guðjóni sem talaði um Grænland sem fyrirheitna landið. Og líka gaman að vera uppá heiði 2 saman í bíl þegar hann ákveður að hringja í vin sinn og spjalla, og ákveður að hafa slökkt á útvarpinu líka. Elska það að sitja og hlusta eina hlið af samtali. Ég hugga mig bara við það að ég er á bullandi launum við að sötra kaffið.

Vestfirđir here I come like the wind and somethingKristófer Ari

Hér sit ég og hugsa minn gang og reyni að ákveða hvað ég eigi að taka með vestur á firði. Reyndar eru þetta bara 2 dagar svo ég held ég láti mér nægja að taka vinnuföt og svo venjuleg föt. Reyndar skiptir ekki miklu máli hvað þetta hefði verið löng ferð því ég efa að ég hefði tekið fleiri föt með mér. Eftir allt er ég ekki rassariðill.

Sindrungur er óðum að ná sér eftir slæm rassmeiðsli, en hann er nú orðin næstum jafnlatur og hann var fyrir "slysið". Reyndar vil ég meina að þetta hafi verið svona "god intervention"  eða einhver æðri öfl sem voru að reyna segja honum að hætta sitja á rassgatinu allan daginn í tölvunni. Því miður skildi hann þetta bara sem " hættu að sitja á rassgatinu í tölvunni á gólfinu "  Jæja svo lengi sem hann lærði einhverja lexíu þá er það ágætt.

Ég er líka byrjaðu að spá í að byrja æfa Frisbífótbolta sem virkar einhvernvegin svipað og amerískur fótbolti. Touchdowns og einhvað en maður má ekki hlaupa með frisbíinn. Verður að senda hann og taka kúl kung fu stökk og grípa hann. Ekki ósvipað og ef diskurinn væri gæs.

Jæja bæ

Engar flísar!Kristófer Ari

Helgin komin og Sindri er enn við sama heygarðshornið, latur eins og fíll með downsyndrome, en er ekki búin að fá aðra flís í botninn. Fyndið að sjá hann passa sig mjöög vel þegar hann sest niður, passa að hann fái ekki aðra flís. Reyndar vonast allir eftir því, útaf ef þetta kemur fyrir aftur þá get ég ekki séð mig fyrir mér aftur að reyna rétta honum fram hjálparhönd.

Mér finnst tilraun mín til að hjálpa honum fái jafnmikið vægi og að bjarga lífi viðkomandi. Frekar hefði ég viljað bjarga lífi hans heldur en að þurfa hafa fés mitt og hendur svo nálægt anusi.

Veturinn komin og orđin lćđast hingađ inn ... og ýmislegt annađ ratar á stađi sem engin ćtti ađ snerta.Kristófer Ari

Langt síðan ég hef skrifað einhvað af einhverju viti hér inná. En þegar ég leiði minn fáfróða en fallega huga að því þá rennur upp fyrir mér að þegar ég skrifa einhvern texta er voðasjaldan einhvað vit í honum. Meira af óvitaskap fíflalátum, en maður hefur nú bara gott af því.

En nóg af svona helvítis helvíti. Núna blasir lífið og lukkan við mér held ég. Er fluttur til Reykjavíkur, í Skaftahlíðina nánar tiltekið, og uni mér vel í sambúðinni með Sindra Bach, Eiríki Sigmarssyni og Freyju. Búin að koma okkur svo vel fyrir að það nær ekki neinni átt. Allt var búið að ganga tiltölulega hættulaust fyrir sig undanfarnar vikur en einhvað hlaut að gefa eftir á endanum.

Það var fallegt fimmtudagskvöld og vindurinn hvein fyrir utan gluggan þegar það rann á okkur vídjólöngun, löngun sem var ekki hægt að slökkva í nema með einni góðri spólu...eða það héldum við!....

Sindri setti sig í tölvustellingar á gólfinu og var einhvað að dandalast með tölvuna og setja bíómynd inná sjónvarpsflakkarann sinn. Jæja svo ætlar hann að standa upp en rekur í staðin upp ógurlegt óp. Við Eiki lítum hvor á annan og vonuðumst eftir því besta en óttuðumst það versta....að hann hefði misst einn vel blautan í buxurnar. Það fór betur en á horfðist því Sindri lá í gólfinu með tárin í augunum og tjáði okkur að hann væri komin með flís í rassinn eða einhvað álíka.

Hann drífur sig inná klósett og lokar á eftir sér. Við reyndum eftir mesta megni að ná myndum af herlegheitunum en hann þvertók fyrir allar myndatökur. Bakvið luktar dyr heyrum við óp og öskur eins og væri verið að stinga lítinn grís í belginn. Grunurinn reyndist vera á rökum reistum og var komið upp nýtt vandamál, reyndar 2 ný.

Vandamál 1: Alltaf þegar hann reyndi að toga flísina úr sjálfur þá reif hann alltaf í rasshárin, sjálfum sér til mikils ama. Hann bragð því á það ráð að raka rassinn á sér þar sem flísin var. (note to self, aldrei nota rakvélina hans)

Vandamál 2: Flísin var á svo asnalegum stað að hann náði ekki í hana sjálfur svo hann lét mig og Eirík reyna það.

Ég og Eiríkur horfðum gjörsamlega upp í stórt loðið svarthol, staður sem engin lifandi maður ætti að koma nálægt, og vorum við ekki alveg vissir hvort hlutir hefðu einungis verið á leiðinni út um þetta gat því ýmis ummerki um mannagang voru þarna. Við náðum okkur í töng og svo var bara toga og óboy var hún föst. Fyrst reyndum við að rífa hana úr eins og plástur. Snögg og fast = slæm hugmynd. Sindri orgaði af sársauka og perlaði svitinn af enninu á honum. Ég háði næstu tilraun og tók heljartaki á tönginni og sömuleiðis á flísinni. Togaði og teygði á rassgatinu hans eins og engin hafði teygt það áður, en flísin bifaðist ekki. Ég varð að sleppa því sindri þurfti tíma til að jafna sig....í rassinum, ekki ósvipað og Páll óskar gæti ég ýmindað mér. í Seinna skiptið sameinaði ég aðferðirnar tvær í eina ofuraðferð. Togaði flísina eins langt og ég gat niður, og reif svo í af öllum lífsins sálarkröftum. Og viti menn, ennþá pikkföst.

Ég og Eiríkur vorum orðnir eins og gátur í framan og hugmyndirnar okkur að þrotum komnar. Engin önnur leið var til umræðu nema fara uppá slysó. Þar beið sindri í 4 tíma, sitjandi á annari rasskinninni, eftir því að hitta lækni sem gat deyft hann og skorið flísina úr honum. Samkvæmt lækninum var þetta erfiðasta skurðaðgerðinn sem hann hefði framkvæmt á rassi, enda einn loðnasti rass sem sögur fara af borgarspítalanum. Einnig sagðist hann sjá greinileg merki þess að bróðir hans væri í skítamóral en ekki spyrja mig hvernig hann sá það út....ég er engin læknir.

Er ekki komin tími!Kristófer Ari

Er ekki komin tími á að rita nokkur orð hérna á síðuna til að fullvissa mig um að ég kunni enn að skrifa íslensku. Margt hefur á daga mína drifið síðan ég skrifaði seinast hérna. Hef ég meðal annars flutt til Reykjavíkur, flutt heim og flutt til Hveragerðis þar sem ég leigi nú með Hlyn og Denna löggu. Sú sambúð gengur eins og í sögu, fyrir utan hvað klósettið hefur fengið illa útferð vegna refsinga. Nenni ekki að skrifa meira....og það les þetta engin nema þú hvort sem er ....jebb I'm watching you
Síđa 1 af 8

Kristó heiti ég

og kalla ekki allt ömmu mína, Endilega ekki vera feimin viđ ađ skrifa í gestabókina og ađ commenta álliti ykkar á öllu!

Teljari

Leit